Handknattleiksdeild HK hefur ráðið Davíð Edward Anderson í starf styrktarþjálfara til næstu tveggja ára. Hann mun sjá um styrktarþjálfun karla og kvenna frá meistaraflokki niður í 4. flokk.
Bæði karla- og kvennalið HK munu leika í Olísdeildinni á næsta tímabili. Karlaliðið hafnaði í áttunda sæti Olísdeildarinnar og komst þannig í úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn og kvennaliðið vann Grill 66 deildina.
„Það ríkir gríðarleg ánægja innan HK með þessa niðurstöðu. Davíð kemur inn með mikla þekkingu, metnað og fagmennsku sem mun nýtast félaginu afar vel á komandi árum.
HK bindur miklar vonir við samstarfið og hlakkar til að sjá Davíð taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og þróun félagsins,“ sagði í tilkynningu handknattleiksdeildar HK.



