- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Draumur Bjarka rætist ekki – Tap í 8-liða úrslitum fjórða árið í röð

- Auglýsing -

Fjórða árið í röð féllu Bjarki Már Elísson og liðsfélagar í ungverska meistaraliðinu One Veszprém úr leik með minnsta mun í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla. Þeir töpuðu í kvöld í vítakeppni fyrir Füchse Berlin í síðari viðureign liðanna. Að loknum 120 mínútum var staðan jöfn, 65:65. Gripið var til vítakeppni sem þýska liðið vann, 4:3. Mathias Gidsel innsiglaði sigur Berlínarliðsins.


Þar með er ljóst að draumur Bjarka Más Elíssonar um að taka þátt í úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu með One Veszprém verður að engu. Hann rennur út af samningi hjá félaginu í sumar. Síðast er fréttist benti ekki margt til þess að honum standi til boða nýr samningur.

Mathias Gidselí þann mund að skora úr vítakastinu sem reið baggamuninn. Rodrigo Corrales markvörður One Veszprém kom engum vörnum við. Ljósmynd/EPA

Í sannkölluðum spennutrylli mátti vart á milli liðanna sjá í Max Schmeling-Halle í kvöld. Auk sigurmarks Gidsel úr vítakastinu þá varði serbneski landsliðsmarkvörðurinn Dejan Milosavljev tvö vítaköst frá leikmönnum One Vespzrém. Bjarki Már var einn þriggja leikmanna One Veszprém sem skoruðu í vítakeppninni.

Füchse Berlin tekur þátt í úrslitahelgi Meistaradeildar annað árið í röð. Leikið verður í Lanxess Arena í Köln 13. og 14. júní.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -