- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ellefu mörk skoruð eftir gegnumbrot

Elín Rósa Magnúsdóttir fór á kostum í sóknarleik íslenska landsliðsins gegn Kína. Mynd/IHF
- Auglýsing -

Stúlkurnar skorðu ellefu af þrjátíu mörkum sínum gegn Kínverjum, 30:23, eftir gegnumbrot. Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði 5 mörk eftir gegnumbrot, Díana Dögg Magnúsdóttir þrjú, Thea Imani Sturludóttir tvö og Sandra Erlingsdóttir eitt mark.

5 mörk voru skoruð með langskotum, 3 eftir hraðaupphlaup, 4 úr vítaköstum, 4 úr horni og 3 af línu (Hildigunnur Einarsdóttir öll).


Markverðir:

0 – Elín Jóna Þorsteinsdóttir.
0 – Hafdís Renötudóttir.

Aðrir leikmenn:

0 – Berglind Þorsteinsdóttir.
3 – Díana Dögg Magnúsdóttir, öll eftir gegnumbrot.
6 – Elín Rósa Magnúsdóttir, fimm eftir gegnumbrot, eitt með langskoti.
0 – Elísa Elíasdóttir.
3 – Hildigunnur Einarsdóttir, öll af línu.
0 – Jóhanna Margrét Sigurðardóttir.
0 – Katla María Magnúsdóttir.
3 – Lilja Ágústsdóttir, tvö eftir hraðaupphlaup, eitt úr horni.
1 – Perla Ruth Albertsdóttir, eftir hraðaupphlaup.
6 – Sandra Erlingsdóttir, fjögur úr vítaköstum, eitt með langskoti og eitt eftir gegnumbrot.
0 – Sunna Jónsdóttir.
5 – Thea Imani Sturludóttir, þrjú með langskotum, tvö eftir gegnumbrot.
2 – Þórey Anna Ásgeirsdóttir, bæði úr horni.
1 – Þórey Rósa Stefánsdóttir, úr horni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -