- Auglýsing -
Þrír leikir eru á dagskrá í dag í Meistaradeild kvenna en þeim var frestað á dögunum vegna kórónufaraldursins. Brest tekur á móti FTC í A-riðli en sá leikur er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið í baráttunni um annað sætið í riðlinum sem gefur farseðil beint í 8-liða úrslitin. Í hinum leik riðilsins tekur Esbjerg á móti Podravka frá Króatíu.
Í B-riðli eigast svo við tyrkneska liðið Kastamonu og Sävehof frá Svíþjóð þar sem að nýliðarnir frá Tyrklandi vonast til að ná í sín fyrstu stig á þessari leiktíð.
A-riðill:
Esbjerg – Podravka | Laugardagur kl 15.00 | Beint á EHFTV.com
- Esbjerg er á mikilli sigurgöngu þessar vikurnar en liðið hefur nú unnið sex leiki í röð og ekki tapað í síðustu átta leikjum sínum.
- Tapi Podravka þessum leik þá eru vonir um sæti í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar úr sögunni.
- Danska liðið er með næst bestu vörnina í Meistaradeildinni en það hefur einungis fengið á sig 24,7 mörk að meðaltali og aðeins 22 mörk að meðaltali á sig á heimavelli.
- Podravka hefur tapað síðustu 15 útileikjum sínum í Evrópukeppninni og er auk þess með neikvæða markatölu sem nemur 54 mörk í þeim fjórum útileikjum sem liðið hefur spilað á leiktíðinni.
Brest – FTC | Laugardagur kl 19.00 | Beint á EHFTV.com
- Aðeins þrjú lið hafa unnið alla heimaleiki sína til þessa, Brest, Esbjerg og Györ.
- Eftir að hafa byrjað vel í riðlinum hefur FTC tapað tveimur af síðustu þremur leikjum sínum og hefur aðeins tveggja stiga forystu á Brest í riðlinum.
- Báðir tapleikir FTC komu á útivelli gegn liðum sem það er í baráttu við um toppsæti riðilsins.
- FTC vann fyrri leik þessara liða í vetur með eins marks mun, 28-27.
B-riðill:
Kastamonu – Sävehof | Laugardagur kl. 11.00 | Beint á EHFTV.com
- Kastamonu hefur tapað öllum 10 leikjum sínum til þessa í keppninni en Sävehof hefur hins vegar náð í fjögur stig.
- Bæði lið töpuðu á heimavelli um síðustu helgi.
- Það var fimmti ósigur sænska liðsins í röð. Síðasti sigurleikur þess var gegn Kastamonu í fyrri leik liðanna.
- Sävehof er með verstu vörnina í Meistaradeildinni til þessa. Liðið hefur fengið á sig 33,5 mörk að meðaltali í leik.
- Jamina Roberts leikmaður Sävehof er þriðja markahæst í Meistaradeildinni með 67 mörk en Jovanka Radicevic leikmaður Kastamonu er í sjötta sæti með 58 mörk.
- Auglýsing -