- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Evrópumeistararnir mæta Þýskalandsmeisturunum í Meistaradeildinni

- Auglýsing -

Íslendingalið SC Magdeburg dróst gegn löndum sínum í Füchse Berlín í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla. Aalborg Håndbold og FC Barcelona mætast í hinni viðureigninni.

Dregið var í undanúrslitin í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu, EHF, í Vín í Austurríki í dag. Magdeburg er ríkjandi Evrópumeistari og er komið langt með að tryggja sér þýska meistaratitilinn, þar sem Füchse er enn sem komið er ríkjandi meistari. Liðin léku til úrslita í Meistaradeildinnni á síðasta ári.


Füchse tryggði sér þýska bikarmeistaratitilinn í síðasta mánuði og því er ljóst að barist verður til þrautar í Lanxess Arena í Köln þegar úrslitahelgin fer fram í Meistaradeildinni 13. – 14. júní.

Barcelona og Aalborg mættust í úrslitaleik Meistaradeildar fyrir tveimur árum. Barcelona vann nauman sigur, 31:30.

Undanúrslitaleikirnir tveir fara eins og gefur að skilja fram 13. júní og úrslitaleikurinn og leikurinn um bronsverðlaunin fara svo fram strax degi síðar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -