Danska félagið Holstebro Håndbold, sem Katla María Magnúsdóttir leikur með, mun framvegis ekki heita því nafni. Félagið tilkynnti í vikunni að framvegis myndi félagið heita Nordvestjysk Elite.
Katla María og stöllur hennar unnu dönsku B-deildina á nýafstöðnu tímabili og spila því í úrvalsdeildinni á því næsta, en undir nýjum merkjum.
Í fréttatilkynningu frá Nordvestjysk Elite kemur fram að nafnabreytingin snúist um annað og meira en nýtt nafn og merki á keppnistreyjunum. Hugsunin sé að félagið verði áfangastaður fyrir allar efnilegar handboltakonur í norðvesturhluta Jótlands.
„Þetta snýst ekki um landafræði heldur að það sé vettvangur fyrir kvenkyns leikmenn af öllu svæðinu til þess að fá tækifæri til að þróast og láta drauma sína um að spila handbolta á háu stigi rætast hér,“ sagði Morten Villadsen, framkvæmdastjóri félagsins, í tilkynningunni.



