Karlalið þýska félagsins HSG Wetzlar, sem Rúnar Sigtryggsson þjálfar, heldur áfram að styrkja sig fyrir næsta tímabil. Norski línumaðurinn Petter Øverby kemur frá THW Kiel í sumar og skrifar undir þriggja ára samning eftir fjögurra ára dvöl hjá Kiel.
Øverby er 34 ára gamall og semur við Wetzlar óháð því hvort liðið spili í þýsku 1. deildinni eða B-deildinni á næsta tímabili.
Wetzlar er í 16. sæti af 18 liðum með 15 stig, jafnmörg og GWD Minden og tveimur stigum fyrir ofan botnlið DHfK Leipzig þegar þrjár umferðir eru óleiknar. Wetzlar er því enn í mikilli fallhættu enda falla tvö neðstu liðin.
Það hefur ekki komið í veg fyrir að Wetzlar undirbýr sig af kappi fyrir næsta tímabil. Þeir leikmenn sem bætast í hópinn í sumar hafa allir samþykkt að setja það ekki fyrir sig í hvorri deildinni Wetzlar kemur til með að spila í á næsta tímabili.


