Íslendingalið HC Erlangen hefur átt í miklum vandræðum inni á vellinum upp á síðkastið. Eftir fimm töp í röð í þýsku 1. deildinni á liðið á hættu að sogast fyrir alvöru í fallbaráttu.
Viggó Kristjánsson og Andri Már Rúnarsson hafa báðir verið fjarri góðu gamni vegna meiðsla í þessari taphrinu, og raunar lengur, og munar bersýnilega um minna.
Handkastið greinir frá því að Viggó verði ekki meira með á tímabilinu þar sem hann þarf að gangast undir aðgerð á hné vegna meiðsla sem hafa haldið örvhentu skyttunni frá keppni frá því í mars.
Miðillinn skýrir einnig frá því að Andri Már hafi glímt við nárameiðsli frá því í apríl og að hann viti ekki hvort hann geti tekið þátt í mikilvægum síðustu leikjum Erlangen á tímabilinu.
Erlangen er í 14. sæti af 18 liðum, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti, þegar tvær umferðir eru óleiknar. Liðið mætir lærisveinum Arnórs Þórs Gunnarssonar í Bergischer HC, sem er í 15. sæti, á heimavelli í 33. umferð á föstudag og svo TVB Stuttgart, sem er í 12. sæti, í lokaumferðinni á útivelli þann 7. júní.
Staðan í deildinni:



