- Auglýsing -
Ungmennalið Fram varð deildarmeistari í Grill 66-deild karla og fékk sigurlaun sín afhent í dag eftir að síðustu leikjum deildarinnar lauk. Fram tapaði fyrir ungmennaliði, 25:22, í lokaumferðinni á heimavelli, í Lambhagahöllinni. Tapið kom ekki veg fyrir öruggan sigur ungu Framaranna. Þeir unnu 13 af 18 leikjum sínum í vetur, gerðu þrjú jafntefli og töpuðu tveimur.
Fram U fékk 29 stig, þremur stigum fleiri en ÍR-ingar sem höfnuðu í öðru sæti og færast upp í Olísdeild á næstu leiktíð eftir eins árs veru í Grill 66-deildinni.
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2024/03/434244313_2639402179533787_2305367101671479092_n-1024x768.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2024/03/434286225_1456087138601915_6297620184300765790_n-1024x768.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2024/03/434304135_2472605669793554_2751283963674994755_n-1024x768.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2024/03/434299662_1575338499972737_8734748342368237739_n-1024x768.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2024/03/434245823_1192444258573053_6992196129200997354_n-4-1024x768.jpg)
Fram U er að uppstöðu til skipað leikmönnum sem eru uppaldir inna félagsins. Flestir þeirra hafa þegar gert sig gildandi með Olísdeildarliði félagsins.
Lokastaðan í Grill 66-deildum.
- Auglýsing -