- Auglýsing -
Markvörðurinn Þórdís Idda Ólafsdóttir er gengin alfarið í raðir Víkings Reykjavík, þar sem hún lék að láni frá Fram á nýafstöðnu tímabili. Þórdís Idda skrifaði undir tveggja ára samning við Víkinga.
Hún er 18 ára gömul og lék tvo leiki með Víkingi í Grill 66 deildinni á tímabilinu.
„Við erum virkilega ánægð með undirritunina og erum spennt að fylgjast með henni á komandi tímabilum!“ sagði í tilkynningu frá handknattleiksdeild Víkings.
Víkingur hafnaði í þriðja sæti Grill 66 deildarinnar og féll úr leik í umspili um sæti í Olísdeildinni með 2:0 tapi fyrir Stjörnunni í undanúrslitum.
- Auglýsing -


