- Auglýsing -
- Auglýsing -

Grill 66karla: Tækifærið gekk Þórsurum úr greipum – ÍR á ný í toppbaráttu

Marknet í Laugardalshöll. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Þór tókst ekki að komast í efsta sæti Grill 66-deildar karla í handknattleik í dag. Liðið steinlá fyrir ÍR í Skógarseli, 34:22, og þar með áfram í þriðja sæti deildarinnar með níu stig eins og Fjölnir. Ungmennalið Fram er efst með 10 stig eftir sigur á Fjölni í vikunni.


ÍR-ingar voru mikið sterkari í leiknum í Skógarseli í dag, ekki síst í síðari hálfleik þegar varnarleikur og markvarsla var eins og best var á kosið. Staðan í hálfleik var 17:13, ÍR í vil.

Halldór Örn Tryggvason þjálfari Þórs messaði hressilega yfir sínum mönnum inni í klefa að leik loknum. Var hann greinilega afar vonsvikinn með úrslitin enda gekk gullið tækifæri úr greipum Þórsara til að tylla sér einir í toppsætið.

Með sigrinum stimplaði ÍR sig á ný inn í baráttu efstu liða deildarinnar. ÍR er aðeins stigi á eftir Fjölni og Þór þegar sex umferðir eru að baki.

Staðan og næstu leikur í Grill 66-deildum.

ÍR – Þór 34:22 (17:13).
Mörk ÍR: Hrannar Ingi Jóhannsson 8, Eyþór Ari Waage 5, Baldur Fritz Bjarnason 4, Jökull Blöndal Björnsson 4, Bernard Kristján Darkoh 3, Róbert Snær Örvarsson 3, Andri Freyr Ármannsson 2, Egill Skorri Vigfússon 2, Sveinn Brynjar Agnarsson 2, Bjarki Steinn Þórisson 1.
Varin skot: Rökkvi Pacheco Steinunnarson 14.
Mörk Þórs: Brynjar Hólm Grétarsson 3, Friðrik Svavarsson 3, Jón Ólafur Þorsteinsson 3, Sigurður Ringsted Sigurðsson 3, Viðar Ernir Reimarsson 3, Aron Hólm Kristjánsson 2, Arnór Þorri Þorsteinsson 2, Arnþór Gylfi Finnsson 1, Garðar Már Jónsson 1, Halldór Yngvi Jónsson 1.
Varin skot: Kristján Páll Steinsson 6.

Víkingur U – Haukar U 26:42 (14:25).
Mörk Víkings U.: Benedikt Emil Aðalsteinsson 5, Stefán Scheving Guðmundsson 4, Einar Marteinn Einarsson 3, Kristófer Snær Þorgeirsson 3, Arnar Gauti Arnarsson 2, Arnar Már Ásmundsson 2, Bergur Breki Ragnarsson 2, Ísak Þorri Maier 2, Sigurður Páll Matthíasson 2, Nökkvi Gunnarsson 1.
Varin skot: Hinrik Örn Jóhannsson 6, Heiðar Snær Tómasson 2.
Mörk Hauka U.: Birkir Snær Steinsson 7, Egill Jónsson 7, Sigurður Snær Sigurjónsson 7, Bóas Karlsson 6, Freyr Aronsson 5, Ásgeir Bragi Þórðarson 3, Helgi Marinó Kristófersson 3, Jón Brynjar Kjartansson 1, Jónas Eyjólfur Jónasson 1, Páll Þór Kolbeins 1, Stefán Karolis Stefánsson 1.
Varin skot: Magnús Gunnar Karlsson 11, Magnús Gunnar Karlsson 3.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

„Var hræðilegt hjá okkur frá upphafi til enda“

Getum orðið mikið betri en við erum

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -