- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Hákon Daði liggur undir feldi

- Auglýsing -

Samningur Hákons Daða Styrmissonar, vinstri hornamanns ÍBV, er senn á enda og því er honum frjálst að róa á önnur mið. Hákon Daði býr á höfuðborgarsvæðinu ásamt unnustu sinni og barni þeirra og því er ekki víst hvar hann spilar á næsta tímabili.

„Það er allt opið eins og er,“ sagði Hákon Daði í samtali við Handkastið, spurður hvar hann kæmi til með að spila á næsta tímabili.


Hákon Daði gekk til liðs við uppeldisfélag sitt ÍBV í janúar síðastliðnum eftir að hafa leikið um nokkurra ára skeið í Þýskalandi, fyrst með VfL Gummersbach og svo Eintracht Hagen.

Hann samdi aðeins til hálfs árs í Vestmannaeyjum. Handkastið skýrir frá því að nýliðar Víkings Reykjavíkur hafi áhuga á að semja við Hákon Daða og kvaðst hann hafa heyrt í Aðalsteini Eyjólfssyni þjálfara Víkinga.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -