- Auglýsing -
- Auglýsing -

Handboltinn okkar: Áhyggjur og vilja meiri metnað – velt vöngum yfir Olísdeild karla

- Auglýsing -

49. þáttur af Handboltinn okkar kom út í gær þar sem að strákarnir kynntu til leiks nýjan liðsmann, Daníel Berg Grétarsson. Hann er handboltaunnendum að góðu kunnur. Kvartettinn fór yfir landsleik Íslands og Slóveníu sem fram fór á miðvikudaginn þar sem þeir höfðu ákveðnar áhyggjur af kvennaboltanum. Þeim finnst alltof fáir leikmenn sem eru með gæði til þess að spila í alþjóðalegum bolta. Þeir vilja sjá meiri metnað í yngri flokka þjálfun hjá stelpunum og að félögin almennt setji meiri metnað í kvennastarfið hjá sér.


Þá fóru þeir einnig yfir leikina tvo í Olísdeild karla sem fóru fram á fimmtudag. Það var einkennandi fyrir þessa tvo leiki að það var töluverður haustbragur á liðunum enda langt síðan að leikmenn hafa spilað. Þeir enduðu svo þáttinn á því að spá í næstu umferð í Olísdeild karla þar sem að þeir Arnar og Daníel spáðu að ÍR myndi sigra Selfoss og þar með ná í sín fyrstu stig í Olísdeild karla.

Hægt að hlusta á þáttinn með því að smella á örina neðst í hægra horninu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -