- Auglýsing -
- Auglýsing -

Handboltinn okkar: Ein deild, kærumál, leikurinn sem aldrei varð

- Auglýsing -

Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíóið sitt og tóku upp 21. þátt vetrarins. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Daníel Berg Grétarsson.
Í þætti dagsins ákvaðu þeir félagar að fara yfir þrjú atriði sem hafa komið upp í umræðunni að undarförnu.


Þeir byrjuðu á því að kíkja á hugmynd um breytt deildarfyrirkomulag í Olísdeild kvenna í eina deild líkt og var hér áður.

Þá ræddu þeir um kærumálið í Garðabænum þar sem að enn einu sinni voru gerð mistök í talningu marka á tímavarðarborðinu. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem svona mistök eiga sér stað í Garðabænum. Hvetja þeir félagar forsvarsmenn Stjörnunnar að fá nýja aðila í þetta hlutverk.


Í lok þáttar var farið yfir hitamálið í tengslum við fyrirhugaðan bikarleik Harðar og Fjölnis sem átti að fara fram þann 14. desember. Fjölnismenn ákváðu að gefa leikinn og báru fyrir sig að þeir ættu ekki í lið þar sem að leikmenn liðsins væru fastir í prófum. Þeir félagar gefa lítið fyrir þessar útskýringar og ganga svo langt að þetta lýsi metnaðarleysi félagsins í hnotskurn. Ganga þeir svo langt að hvetja forsvarsmenn félagsins að hreinlega draga liðið úr keppni því það er útlit fyrir þeir komi til með að spila í úrslitakeppni í miðri prófatörn í vor.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -