- Auglýsing -
- Auglýsing -

Handboltinn okkar: Fögnuður, pillur, hausverkur, fallin og slúður

- Auglýsing -

Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar slá ekki slöku við um þessar mundir og gáfu út enn einn þáttinn í gærkvöld, annan daginn í röð. Að þessu sinni fóru þeir yfir allt það sem gerðist í 12. umferð í Olísdeild karla. Þeir félagar fögnuðu því að Björgvin Páll Gústavsson sýndi sitt rétta andlit sem besti markvörður deildarinnar sem og að Adam Haukur Bamruk sé fundinn.  

Einnig þykir þeim pillan sem Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfyssinga, sendi HSÍ ekki halda vatni þar sem það voru formenn félaganna sem ákváðu hvernig mótahaldið yrði eftir að keppni var heimiluð á ný.  Félagarnir fóru svo yfir það að Tumi Steinn Rúnarsson hefði með frammistöðu sinni gegn FH valdið Snorra Steini Guðjónssyni, þjálfara Valsliðsins, ákveðnum hausverk þar sem Tumi Steinn sýndi að hann gerir tilkall til meiri spilatíma með liðinu.  Að endingu gengu þeir svo langt að tilkynna um það að Þór Akureyri og ÍR væru fallin niður í Grill66 deild karla.

Þá fóru þeir að lokum yfir nokkra slúðurmola þar sem að heyrst hefur að ÍBV sé í viðræðum við þá Gunnar Stein Jónsson og Aron Rafn Eðvarðsson. Eins hefur heyrst að Ólafur Guðmundsson hugi að heimferð og sé í viðræðum við KA.

Þá völdu þeir þá leikmenn sem eru tilnefndir sem BK leikmenn umferðarinnar en það eru þeir Tumi Steinn Rúnarsson (Val), Björgvin Páll Gústavsson (Haukum), Hergeir Grímsson (Selfoss), Gunnar Malmquist (Aftureldingu), Lárus Helgi Ólafsson (Fram) og Hákon Daði Styrmisson (ÍBV).

Hægt er að hlusta á þáttinn með því smella á örina í niðri í hægra horninu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -