- Auglýsing -
- Auglýsing -

Handboltinn okkar: Tímabilið gert upp, lokahóf og breytingar

- Auglýsing -

Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar var á ferðinni í dag þegar tríóið Jói Lange, Gestur og Arnar settust í stúdíoið sitt og tóku upp 74. þátt tímabilsins. Þetta er jafnframt lokaþátturinn fyrir sumarfrí.


Í þætti dagsins fóru þeir félagar aðeins yfir handboltatímabilið sem er nýlokið og ræddu meðal annars um lokahóf HSÍ sem var haldið í gær. Þá fóru þeir aðeins yfir næsta tímabil og veltu þeir fyrir sér breytingum sem eru fyrirhugaðar hjá nokkrum liðum.


Að lokum vildu þeir félagar koma á framfæri þakklæti til Halla á BK Kjúkling fyrir stuðninginn í vetur og hvöttu handboltafólk að kíkja á BK og fá sér að snæða. Þá þökkuðu þeir þeim Andra Má Eggertssyni og Atla Rúnari Steinþórssyni fyrir þeirra framlag til þáttanna fyrir áramót en þeir þurftu að yfirgefa skútuna vegna anna í vinnu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -