- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Haukur lét til sín taka í Íslendingaslag í Mannheim

- Auglýsing -

Haukur Þrastarson var að vanda driffjöður sóknarleiks Rhein-Neckar Löwen í dag þegar liðið vann MT Melsungen, 30:22, á heimavelli í 30. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Haukur skoraði átta mörk og gaf fimm stoðsendingar og var markahæsti leikmaður Rhein-Neckar Löwen. Hann skoraði úr eina vítakastinu sem liðið fékk að þessu sinni.


Reynir Þór Stefánsson skoraði fjögur mörk fyrir MT Melsungen. Arnar Freyr Arnarsson skoraði tvö mörk. Reynir Þór var markahæstur ásamt Florian Drosten og Olle Forsell Schefvert.

Melsungen-liðið átti á brattann að sækja frá byrjun og var sex mörkum undir í hálfleik að viðstöddum 8.596 áhorfendum í SAP Arena í Mannheim.

Sviptingar á botninum

Annað kvöldið urðu sviptingar í botnbaráttu deildarinnar. Í gær vann botnlið Leipzig leik sinn við Erlangen og komst upp í næst neðsta sæti. GWD Minden hrapaði til botns við sigur Leipzig í gær. Í kvöld spyrntu leikmenn GWD Minden sér frá botninum og unnu Lemgo í grannaslag, 32:28.

Staðan í þýsku 1. deildinni:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -