- Auglýsing -
- Auglýsing -

HMU19: Spánverjar bestir – Óli markahæstur

Heimsmeistarar Spánar í flokki 19 ára landsliða karla. Mynd/ IHF / HRS / kolektiff
- Auglýsing -

Spánverjar unnu Dani með fimm marka mun, 28:23, í úrslitaleik heimsmeistaramóts 19 ára landsliða karla sem lauk í Varaždin í Króatíu í kvöld. Spænska liðið var mikið sterkara í síðari hálfleik en Danir fóru með eins marks forskot inn í hálfleikshléið eftir 30 mínútur, 14:13.


Spánn varð Evrópumeistari 18 ára landsliða með nánast sama leikmannahóp fyrir ári síðan í Porto í Portúgal. Þeir eru eins og Danir voru taplausir fyrir úrslitaleikinn í dag og voru þar með eina taplausa lið mótsins þegar upp var staðið.

Brons eftir framlengingu

Króatar unnu Afríkumeistara Egyptalands, 39:37, eftir framlengingu í leiknum um bronsverðlaunin. Þar á eftir komu Þjóðverjar, Portúgalar, Norðmenn og Færeyingar en annars er röð liðanna á mótinu að finna hér.

Daninn Frederik Emil Pedersen var valinn mikilvægasti leikmaður mótsins.

Óli Mittún varð markahæstur á HM. Hann skoraði einnig flest mörk á EM 18 ára landsliða fyrir ári. Mynd/ IHF / HRS / kolektiff

Færeyingurinn Óli Mittún varð markahæstur með 87 mörk í átta leikjum. Af Íslendingum varð Reynir Þór Stefánsson markahæstur með 35 mörk í 30. sæti.

Þjóðverjinn Marvin Siemer og Daninn Fredrik Emil Pedersen voru næstir á eftir Óla með 56 mörk hvor.

Úrvalslið mótsins er skipað eftirtöldum leikmönnum:
Markvörður: Alvaro Perez Mendez (Spáni).
Hægra horn: Xavier González Unciti (Spáni).
Hægri skytta: Lasse Sunesen Vilhelmsen (Danmörku).
Miðjumaður: Óli Mittún (Færeyjum).
Vinstri skytta: Aleksandar Čaprić (Króatíu).
Vinsta horn: Belal Masoud (Egyptalandi).
Línumaður: Victor Romero Holguin (Spáni).
Mikilvægasti leikmaðurinn: Frederik Emil Pedersen (Danmörku).

HMU19: Dagskrá og úrslit síðustu leikja mótsins

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -