- Auglýsing -
- Auglýsing -

HSÍ og HR halda áfram samstarfi um mælingar

Róbert Geir Gíslason framkvæmdastjóri HSÍ og Hafrún Kristjánsdóttir frá HR handsala samning um frammistöðumælingar HR. Mynd/HSÍ
- Auglýsing -

Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, hefur endurnýjað samning sinn við Háskólann í Reykjavík, HR, um frammistöðumælingar HR á öllum karlalandsliðum hjá sambandinu. HSÍ og HR hafa frá árinu 2016 verið í nánu samstarfi sem snýr að fræðslu og frammistöðumælinga allra landsliða HSÍ. Þegar er einnig í gildi er samningur milli HSÍ og HR um frammistöðumælingar vegna landsliða kvenna.


„Samvinna HSÍ og HR byggir m.a. á vinnu meistaranema við íþróttafræði HR sem vinnur sín verkefni og þ.m.t. lokaverkerkefni í tengslum við áðurnefndar mælingar. HSÍ og HR hafa m.a. í samvinnu kostað meistaranámsstöðu í íþróttavísindum og þjálfum við íþróttadeild Háskólans í Reykjavík sem snúa að rannsóknum á A landsliðum karla og kvenna.
HSÍ er þakklátt HR fyrir samstarfið enda hefur það skilað góðum árangri sem byggt verður á til framtíðar,“ segir í tilkynningu frá HSÍ.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -