Handknattleiksdeild ÍBV hefur verið úrskurðuð í 150 þúsund kr. sekt „vegna brots áhorfanda á leik ÍBV og Vals í úrslitakeppni Olís-deildar kvenna er fram fór þann 5. maí 2026,” eins og segir orðrétt í niðurstöðu aganefndar vegna fordóma sem beindust að Hafdísi Renötudóttur markverði Vals í áðurnefndri viðureign ÍBV og Vals í Vestmannaeyjum.
Aganefnd segir m.a. í úrskurðarorðum sínum:
„Aganefnd tekur fram að ummæli þau sem fjallað er um í þessu máli fela í sér gróft brot á grunngildum íþróttahreyfingarinnar. Að veitast að leikmanni með vísan til kynhneigðar hennar er atlaga að mannlegri reisn leikmannsins og andstætt öllu því sem íþróttir standa fyrir.
Almenn siðferðisvitund í nútíma þjóðfélagi gerir ríka kröfu um umburðarlyndi, virðingu og jafnrétti. Fordómar og hatursorðræða eiga hvorki heima á leikvelli, í áhorfendastúku né annars staðar í íslensku samfélagi. Slík hegðun verður ekki liðin undir neinum kringumstæðum. Íþróttavellir eiga að vera öruggur vettvangur fyrir alla þátttakendur, óháð kynhneigð þeirra eða öðrum persónuþáttum.
Það er mat aganefndar að framkoma áhorfanda eða áhorfenda á ábyrgð ÍBV sem hér er vikið að, teljist vítaverð og ósæmileg í skilningi 18. gr. reglugerðar um agamál, sbr. einnig 17. gr. sömu reglugerðar. Þá er framkoman ósmekkleg og særandi gagnvart þeim leikmanni Vals sem hún beindist að og til þess fallin að valda íþróttinni álitshnekki. Aðildarfélög bera ábyrgð á stuðningsmönnum sínum og ber að tryggja að framkoma þeirra sé innan þeirra marka sem lög og siðareglur HSÍ setja.“
Aganefnd HSÍ | Úrskurður 08.05.’26
HSÍ tekur í taumana vegna fordóma í garð Hafdísar í leik í Eyjum
ÍBV fordæmir alla mismunum og biður Hafdísi afsökunar



