- Auglýsing -
Sjötti þáttur Kvennkastsins, hlaðvarp, er kominn í loftið beint frá Færeyjum og fóru Jói og Gunnar Valur yfir landsleikinn sem fram fer í dag hjá stelpunum okkar og mátu möguleika Íslands á sigri.
Þeir fóru einnig yfir liðin og leikmennina og fengu góða gesti til sín í spjall. Svo skemmtilega vill til að Dagný Skúladóttir, fyrrum landsliðskempa, og Sigríður Unnur Jónsdóttir, eiginkona Gústa aðstoðarþjálfara og mamma Lilju hornamanns, eru í Færeyjum og voru til í létt spjall.
Leikur Færeyja og Íslands byrjar svo kl.15.00 (14.00 ísl.tími) og verður sýndur beint á RÚV.
Áfram Ísland
- Auglýsing -