- Auglýsing -
Lasse Ohl, leikmaður TV Hüttenberg í þýsku B-deildinni, lenti í alvarlegu bílslysi í heimalandinu á sunnudagskvöld og var fluttur með hraði á sjúkrahús.
Þrátt fyrir alvarleika slyssins er líðan hans stöðug og þess ekki vænst að Ohl hafi meiðst alvarlega. Óhætt er því að segja að betur hafi farið en á horfðist.
„THV fjölskyldan gleðst ósegjanlega yfir því að Lasse hafi fengið fylgd fjölda verndarengla og óskum við honum skjóts og fulls bata!“ sagði meðal annars í yfirlýsingu Hüttenberg sem birt var á Instagram.
Ohl mun áfram dvelja á sjúkrahúsi á meðan hann jafnar sig. Hüttenberg á þrjá leiki eftir í þýsku B-deildinni, er þar um miðja deild og er næsta víst að þátttöku Ohls á tímabilinu sé lokið.
- Auglýsing -



