- Auglýsing -
Hafdís Ebba Guðjónsdóttir stýrði á dögunum sinni síðustu æfingu hjá 7. flokki karla hjá HK. Hún hefur verið þjálfari yngri flokka hjá HK frá árinu 2002 og hafa margir krakkar stigið sín fyrstu skref í handboltanum undir handleiðslu Hafdísar Ebbu í gegnum tíðina.
Í tilefni af síðustu æfingunni var Hafdís Ebba leyst út með blómvendi og kveðjugjöf frá Barna- og unglingaráði HK.
„Við hjá HK erum gríðarlega þakklát fyrir hennar góða og ómetanlega starf í okkar þágu og óskum henni alls hins besta í framtíðinni,“ segir í tilkynningu sem HK sendi frá sér af þessu tilefni.
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2021/06/202412434_1994130224083786_2770848895079280728_n-768x1024.jpg)
- Auglýsing -