- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Lokahóf: Ívar Logi og Harpa María best hjá Fram

- Auglýsing -

Lokahóf handknattleiksdeildar Fram fór fram síðastliðinn fimmtudag, 30. apríl. Þar komu leikmenn, stjórnarmenn, sjálfboðaliðar og styrktaraðilar saman og gerðu sér glaðan dag.

Venju samkvæmt voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi leikmenn auk þess sem veittar voru viðurkenningar fyrir áfangaleiki. Þá kvaddi félagið einnig leikmenn sem halda á vit nýrra ævintýra eða eru að leggja skóna á hilluna.


Verðlaunahafar meistaraflokka Fram voru eftirfarandi:

Meistaraflokkur karla

Besti leikmaður: Ívar Logi Styrmisson
Mikilvægasti leikmaður: Breki Hrafn Árnason
Efnilegasti leikmaður: Max Emil Stenlund

Meistaraflokkur kvenna

Besti leikmaður: Harpa María Friðgeirsdóttir
Mikilvægasti leikmaður: Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín
Efnilegasti leikmaður: Dagmar Guðrún Pálsdóttir

Valgerður Arnalds hlaut þá viðurkenningu fyrir að hafa spilað yfir 100 leiki fyrir meistaraflokk Fram.

Harpa María Friðgeirsdóttir, Dagmar Guðrún Pálsdóttir, Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín og Valgerður Arnalds með verðlaunagripi sína. Ljósmynd/Fram

Sunna og Rúnar kvödd

Á lokahófinu kvaddi Fram þau Sunnu Jónsdóttur og Rúnar Kárason, sem bæði lögðu skóna á hilluna við lok tímabils. „Það var ánægjulegt að sjá Sunnu, sem á að baki farsælan feril hér heima og erlendis, ljúka ferlinum hjá Fram á nýliðnu tímabili. Hún var meðal annars Íslandsmeistari með Fram árið 2013 áður en hún fór utan í atvinnumennsku,“ segir á heimasíðu Fram.


Rúnar Kárason var einnig að ljúka sínum ferli eftir að hafa spilað undanfarin þrjú tímabil hjá uppeldisfélagi sínu Fram. Hann varð Íslands- og bikarmeistari með fram í fyrra og á að baki farsælan feril sem spannar yfir 20 ár í meistaraflokki með Fram, ÍBV og sterkum liðum í Þýskalandi og Danmörku.

„Þó svo að þau Rúnar og Sunna hafi nú lagt skóna á hilluna mun Fram áfram njóta þekkingu þeirra og reynslu þar sem þau munu bæði starfa við þjálfun yngri flokka hjá félaginu,“ segir einnig á heimasíðunni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -