Flestir töldu að norska goðsögnin Katrine Lunde væri endanlega hætt handknattleiksiðkun þegar hún var kvödd með virktum í sínum síðasta landsleik fyrir Noreg í síðasta mánuði. Svo virðist þó ekki vera.
Lunde var nefnilega á leikskýrslu hjá Randesund í leik í úrslitakeppni um að komast upp úr norsku C-deildinni í B-deildina í gær.
Hún er orðin 46 ára gömul og hafði verið án félags frá því í janúar þegar samningur Lunde við Rauðu stjörnuna í Serbíu rann út.
Markvörðurinn sigursæli kom ekkert við sögu í leik Randesund gegn Byåsen í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í gær en fleiri leikir standa fyrir dyrum og því gæti hún ekki ennþá hafa sagt sitt síðasta á vellinum.
Lunde hefur starfað sem markmannsþjálfari Randesund að undanförnu og hljóp í skarðið sem varamarkvörður í gær.



