- Auglýsing -
- Auglýsing -

Lydía og Magnús Dagur fengu Böggubikarinn

Magnús Dagur Jónatansson og Lydía Gunnþórsdóttir. Mynd/Þórir Tryggvason
- Auglýsing -

Handknattleiksfólkið Lydía Gunnþórsdóttir KA/Þór og Magnús Dagur Jónatansson KA hlotnaðist sá heiður að vera handhafar Böggubikarsins en þau voru útnefnd úr hópi ungra íþróttamanna í afmæliskaffi KA í gær.


Böggubikarinn er farandbikar sem veittur er einstaklingum, pilti og stúlku, á aldrinum 16-19 ára sem þykja efnileg í sinni grein en ekki síður mjög sterk félagslega. Einstaklingum sem eru til fyrirmyndar á æfingum og í keppnum og eru bæði jákvæð og hvetjandi.

Böggubikarinn er veittur í minningu Sigurbjargar Níelsdóttur, Böggu, sem fædd var þann 16. júlí 1958 og lést þann 25. september 2011. Bróðir Böggu, Gunnar Níelsson, er verndari verðlaunanna en þau voru fyrst afhent árið 2015 á 87 ára afmæli KA.

Bögga vann um árabil í KA heimilinu og var nokkurskonar mamma allra krakka sem æfðu í húsinu.

Fjölskylda hennar gaf verðlaunagripina til minningar um Böggu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -