Tveir leikir eru á dagskrá í dag í Meistaradeild kvenna. Um er að ræða leiki sem var frestað fyrr í vetur sökum heimsfaraldursins sem geisar um álfuna. Í A-riðli mætast FTC og Metz og fer leikurinn fram í Ungverjalandi en svo skemmtilega vill til að þessi lið eiga líka að mætast á næstkomandi sunnudag en þá á heimavelli Frakkanna.
FTC hafa átt erfitt uppdráttar á heimavelli til þessa en Metz vonast til að ná fylgja á eftir góðum sigri þeirra gegn Krim um síðustu helgi. Hinn leikurinn er á milli Valcea og Buducnost í B-riðli þar sem að þær rúmensku vonast til þess að ná öðrum sigurleik sínum í röð.
Leikir dagsins
A-riðill
FTC – Metz | Miðvikudagur 20. janúar kl 17.45
- Þessi leikur átti að upphaflega að vera í 3. umferð.
- Metz situr í öðru sæti riðilsins með 12 stig úr átta leikjum en FTC er í því fimmta með 10 stig úr níu leikjum.
- Franska liðið ferðaðist beint til Ungverjalands frá Slóveníu þar sem þær mættu Krim um síðustu helgi
- Ungverska liðið tapaði sínum þriðja heimaleik um síðustu helgi þegar þær lutu í lægra haldi fyrir Esbjerg. Aðeins Bietigheim og Krim hafa verri árangur á heimavelli í A-riðlinum.
- Metz hefur samið við frönsku landsliðskonuna Chloe Valentini fyrir næsta tímabil og auk þess endursamið við nokkra lykilleikmenn, meðal annars þær Orlane Kanor og Louise Burgaard.
B-riðill
Valcea – Buducnost | Miðvikudagur 20. janúar kl 16
- Þessi leikur átti upphaflega að fara fram í 7.umferð.
- Eftir sex tapleiki í röð kom loks að fyrsta sigurleiknum hjá Valcea þegar þær sigruðu Podravka um síðustu helgi, 27-25.
- Með þeim sigri komst rúmenska liðið upp fyrir bæði Dortmund og Podravka og sitja nú í sjötta sæti.
- Buducnost komst nálægt því að sigra franska liðið Brest í síðustu umferð þar sem liðin gerðu jafntefli 28-28 eftir að Buducnost var yfir í hálfleik, 18-11.
- Svartfellska liðið hefur fengið þrjú stig úr síðustu tveimur leikjum sínum eftir að goðsögnin Bojana Popovic tók við þjálfuninni.
- Fyrri leik þessara liða lauk með eins marks sigri Buducnost, 29-28.