Theresa Claesson Andreasson, sænsk fyrrverandi landsliðskona, er látin 54 ára að aldri. Claesson Andreasson var margreynd og lék alls 89 A-landsleiki og skoraði í þeim 229 mörk undir lok síðustu aldar og í upphafi þessarar.
Sænska handknattleikssambandið greindi frá og sagði sænskan handknattleik syrgja Claesson Andreasson, sem lék sem hægri hornamaður.
Í tilkynningunni segir að hún hafi verið hluti af þeirri kynslóð landsliðskvenna sem hafi komið Svíþjóð aftur inn á stórmót og lagt grunn að þeim vinnubrögðum og fagmennsku sem nú séu við lýði hjá kvennalandsliðinu.
Claesson Andreasson varð á ferlinum sænskur meistari með IK Sävehof, sem Elín Klara Þorkelsdóttir leikur nú með, vorið 2000 og var sama ár valin besti leikmaður ársins í Svíþjóð.
Hún þjálfaði yngri kvennalandslið Svíþjóðar um skeið og vann þar með stúlkum fæddum á árunum 1990 og 1991, þeirra á meðal Jaminu Roberts og Nathalie Hagman, tveimur af bestu leikmönnum í sögu Svíþjóðar sem lögðu landsliðsskóna nýverið á hilluna.



