- Auglýsing -
- Auglýsing -

Miðasala á landsleikina við Færeyinga er hafin

Miðasala á landsleikina við Færeyinga er hafin. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Fréttatilkynning frá Handknattleikssambandi Íslands.

Strákarnir okkar leika tvo vináttuleiki gegn Færeyjum í Laugardalshöll 3. nóvember kl. 19:30 og laugardaginn 4. nóvember kl. 17:30. Miðasala á leikina hefst kl. 12:00 í dag á slóðinni https://tix.is/is/event/16418/island-f-reyjar/


Leikirnir við Færeyjar eru einu leikir liðsins hér heima áður en liðið heldur út í janúar til þátttöku á EM 2024. Frændur okkar Færeyjar tryggðu sér í fyrsta skipið þátttökurétt á stórmóti í handbolta og verða einnig með á EM og er því um verðugan andstæðing að ræða.

Leikirnir verða í opinni dagskrá á sjónvarpi Símans.

Fyllum Laugardalshöll og styðjum strákana okkar!

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -