- Auglýsing -
- Auglýsing -

Miðasala er hafin á leiki Íslands á EM

Reiknað er með að Íslendingar fjölmenni til München í janúar á EM í handknattleik. Miðasala er hafin. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Fréttatilkynning frá Handknattleikssambandi Íslands:

Miðasala á leiki Íslands á EM 2024 er hafin. Að þessu sinni fer öll miðasala á mótið í gegnum mótshaldara án aðkomu HSÍ. Þeir stuðningsmenn Íslands sem ætla að fylgja liðinu út fara inn á eftirfarandi slóð: 

https://www.eventim.de/en/promotion/mens-ehf-euro-2024-mun-c-team-a-121559/?affiliate=HB4 

og setja kóðann EURO-ISL í Promotion code hólfið. Þá birtast þau sæti sem frátekin eru fyrir stuðningsfólk Íslands.

Eingöngu verða seldir miðar á alla leiki riðilsins og eru þetta dagpassar á alla leiki þriðja riðils sem fram fara í Ólympíuhöllinni í München.

Leikir liðsins í riðlakeppninni eru eftirfarandi:
12. janúar: Ísland – Serbía.
14. janúar: Ísland – Svartfjallaland.
16. janúar: Ísland – Ungverjaland.

Icelandair, bakhjarl HSÍ, býður upp á dagleg flug beint til München og er betra að bóka flugsætið fyrr en seinna því áhuginn á mótinu er mikill.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -