- Auglýsing -
- Hinn vel þekkti handknattleiksþjálfari Dragan Adzic varð að taka pokann sinn á hvítasunnudag hjá ungverska kvennaliðinu Mosonmagyaróvári KC SE í Debrechen eftir aðeins eitt keppnistímabil í þjálfarastólnum. Árangur liðsins undir stjórn Adzic olli vonbrigðum. Adzic er þekktastur sem þjálfari svartfellska meistaraliðsins Budućnost frá 2010 til 2020 og landsliðsþjálfari Svartfellinga um sjö ára skeið. Hann hefur verið þjálfari kvennalandsliðs Slóveníu síðustu fimm ár en átt á sama tíma erfitt uppdráttar sem félagsþjálfari.
- Norski landsliðsmaðurinn Martin Hovde er enn einn leikmaður norska liðsins sem yfirgefur félagið í sumar. Línumaðurinn hefur samið við HSV Hamburg til tveggja ára. Kolstad fær greiðslu frá Hamborgarliðinu fyrir Hovde vegna þess að hann er samningsbundinn Kolstad fram til ársins 2030.
- Serbneska handknattleikskonan Dragana Cvijić hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna í sumar. Cvijić hefur m.a. leikið ríflega 100 landsleiki og átti sæti í silfurliði Serbíu á HM 2013. Hún var einnig í serbneska landsliðinu sem mætti því íslenska á HM 2025 í Stuttgart á síðasta ári. Reyndist Cvijić leikmönnum íslenska landsliðsins óþægur ljár í þúfu.
- Spænski handknattleiksþjálfarinn Ruben Garabaja hefur tekið við þjálfun tyrknesku meistaranna Besiktas. Liðið ætlar sér frama í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. Garabaja hefur víða komið við á þjálfaraferli sínum. Hann var síðast með Eurofarm Pelister í Norður–Makedóníu en lét af störfum um síðustu áramót.
- Montpellier varð um helgina franskur bikarmeistari í handknattleik karla annað árið í röð. Montpellier lagði Nantes, 27:24, í úrslitaleik. Montpellier leikur til undanúrslita í Evrópudeild karla í Hamborg á laugardaginn.
- Í bikarúrslitum í kvennaflokki í Frakklandi lagði Metz Evrópudeildarmeistara Dijon, 33:21, í úrslitaleik. Metz er komið í undanúrslit Meistaradeildar kvenna sem leikin verða eftir tvær vikur.
- Auglýsing -


