- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Bodó, Heymann, Kukic, Wille, Søndergaard, Pesic

- Auglýsing -
  • Ungverski landsliðsmaðurinn Richard Bodó yfirgefur Pick Szeged í sumar eftir 10 ára veru hjá félaginu. Ekki liggur fyrir hvert leið Bodó liggur að lokinni dvölinni í Szeged.
  • Þýski landsliðsmaðurinn Sebastian Heymann gengur til liðs við Hannover-Burgdorf í sumar. Heymann leikur nú með Rhein-Neckar Löwen. Hannover-Burgdorf kaupir upp síðasta árs samning Heymann við Löwen og semur við hann til þriggja ára. Heymann er skytta góð og hugsa forsvarsmenn Hannover-Burgdorf sé gott til glóðarinnar að fá landsliðsmanninn í sínar raðir.
  • Mikið álag verður á Janusi Daða Smárasyni á síðustu vikum hans hjá ungverska liðinu Pick Szeged. Lazar Kukic, einn af leikstjórnendum liðsins, tekur ekki þátt í fleiri leikjum á tímabilinu vegna meiðsla sem hann varð fyrir í undanúrslitaleik bikarkeppninnar á dögunum en Kukic fór úr axlarlið.
  • Janus Daði er eini leikstjórnandi Pick Szeged sem er heill heilsu eftir að Kukuic meiddist og samningi við sænska landsliðsmanninn Jim Gottfridsson var fyrirvaralaust sagt upp á dögunum. Szeged mætir Magdeburg í kvöld í fyrri viðureign liðanna átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
  • Jonas Wille, fráfarandi landsliðsþjálfari norska karlalandsliðsins, er sterklega orðaður við lánlaust lið HØJ sem berst nú fyrir sæti sínu í dönsku úrvalsdeildinni í karlaflokki. HØJ leikur á næstunni við Kolding um keppnisrétt í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Árangur HØJ á leiktíðinni hefur verið langt undir væntingum. Til stóð að byggja upp stórlið en vopnin hafa snúist í höndum þeirra.
  • Kasper Søndergaard kveður Skjern í sumar og tekur við þjálfun Sønderjyske sem skiptir um þjálfara eftir vonbrigði tímabilsins. Søndergaard hefur verið síðustu 15 ár hjá Skjern, fyrst sem leikmaður og síðar í þjálfarateymi liðsins.
  • Króatíski markvörðurinn Ivan Pecic ætlar að taka eitt tímabil til viðbótar með franska liðinu Nantes. Hann hefur skrifað undir samning til loka leiktíðar 2027. Fyrir ári benti allt til þess að Pesic færi frá félaginu en annað varð raunin. Hann fékk árssamning til viðbótar sem nú hefur verið endurnýjaður á ný til eins árs.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -