- Auglýsing -
- Brynjar Vignir Sigurjónsson markvörður gat ekki leikið með Aftureldingu gegn Haukum í Olísdeild karla í handknattleik. Brynjar tognaði á vinstri ökkla í upphitun.
- Gunnar Kristinn Malmquist Þórsson lék ekki með Aftureldingu gegn Haukum í gær vegna meiðsla.
- Bergvin Þór Gíslason var í leikmannahópi Aftureldingar í fyrsta sinn á keppnistímabilinu í gærkvöld. Hann hefur verið frá keppni vegna axlarmeiðsla síðan síðla síðasta vetrar en er óðum að sækja í sig veðrið á ný. Hann kom þó ekkert við sögu í gær.
- Róbert Sigurðarson og samherjar í Drammen unnu ØIF Arendal, 28:26, í áttundu umferð úrvalsdeildar karla í handknattleik í Noregi í gær. Leikið var í Drammenshallen og var heimaliðið marki undir í hálfleik, 15:14. Róbert skoraði ekki mark en lét finna fyrir sér í vörninni. Var honum einu sinni vikið af leikvelli.
- Dagur Gautason skoraði eitt mark fyrir ØIF Arendal. Hafþór Már Vignisson skoraði ekki mark. Þeir félagar áttu eina stoðsendingu hvor. Einnig misstu tvö markskot marks hja Degi.
- Drammen er efst í deildinni eins og áður en ØIF Arendal er í fimmta sæti. Stöðuna í norsku úrvalsdeildinni og fleiri deildum Evrópu er finna hér.
- Storhamar vann Aker, 33:21, á heimavelli í áttundu umferð norsku úrvalsdeildinni í handknattleik kvenna í gær. Akureyringurinn Axel Stefánsson er annar þjálfara Storhamar sem er í öðru sæti deildarinnar með 14 stig.
- Birta Rún Grétarsdóttir var í leikmannahópi Fjellhammer þegar liðið vann Junkeren, 25:24, í næst efstu deild norska handknattleiksins í gær. Fjellhammer er í 5. sæti deildarinnar með sex stig eftir sex leiki, stigi á eftir Junkeren.
- Volda er efst í næst efstu deild norska kvennahandboltans með með 10 stig eftir sex leiki. Volda vann Levanger á heimavelli í gær, 32:22. Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði fjögur af mörkum Volda.
- Auglýsing -