- Auglýsing -
- Dagur Gautason og félagar ØIF Arendal eru komnir í sumarleyfi. Þeir töpuðu í gær fyrir Elverum í síðari viðureign liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik, 41:30, á heimavelli. Eftir eins marks tap í fyrri leiknum á heimavelli Elverum stóðu vonir til að Dagur og félagar gætu gert leikmönnum Elverum skráveifu. Snemma leiks virtist ljóst að af því yrði ekki.
- Dagur skoraði fjögur mörk og hefur þar með lokið frábæru fyrsta keppnistímabil í Noregi en hann var á meðal bestu leikmanna deildarinnar og nokkrum sinnum valinn í lið mánaðarins.
- Elverum mætir Kolstad í úrslitaleikjum úrslitakeppninnar sem hefst í næstu viku.
- Deildarmeistarar Alpla Hard í austurríska handboltanum tryggðu sér sæti í undanúrslitum deildarkeppninnar í gær með öðrum sigri á Ferlach, 31:25, á útivelli. Hannes Jón Jónsson er þjálfari Alpla Hard.
- Andrea Jacobsen landsliðskona var ekki í leikmannahópi Silkeborg-Voel í gær þegar liðið gerði jafntefli við Nykøbing Falster Håndbold, (NFH), 26:26. Leikið var í Nykøbing á Falstri. Andrea fór út fingurlið á æfingu á dögunum.
- Með jafnteflinu brást síðasta von Silkeborg-Voel um að öðlast sæti í undanúrslitum um danska meistaratitilinn. Nykøbing og meistarar Esbjerg komast í undanúrslit úr riðlinum og Odense og Ikast úr hinum.
- Auglýsing -