- Auglýsing -
- Dagur Sigurðsson landsliðsþjálfari Króata mátti bíta í það súra epli í gær að sjá sína leikmenn tapa með þriggja marka mun, 34:31, í vináttuleik við sænska landsliðið í Kristianstad. Axel Månsson var markahæstur hjá sænska landsliðinu með sjö mörk.
- Króatar og Svíar mætast öðru sinni í vináttuleik í Varazdin í Króatíu á laugardaginn.
- Þekktasti og fremsti handknattleiksmaður Argentínu, Diego Simonet, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna í sumar, 36 ára gamall. Simonet hefur stóran hluta ferilsins leikið með Montpellier í Frakklandi. Hann er oft nefndur Messi handboltans.
- Sænski markvörðurinn Tobias Thulin er sagður yfirgefa ungverska liðið Pick Szeged í sumar og ganga til liðs við Benfica í Portúgal. Thulin hefur átt erfitt uppdráttar hjá Pick Szeged og staðið í skugga Rolands Miklers. Þess má geta til fróðleiks að Thulin tók á sínum tíma við af Viktori Gísla Hallgrímssyni þegar sá síðarnefndi kvaddi danska liðið GOG fyrir fjórum árum.
- Sænska handknattleikssambandið hefur áhuga á að halda EM karla í janúar 2034 og EM kvenna í desember sama ár.
- Auglýsing -



