- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Elvar, Guðmundur, Ísak

- Auglýsing -
  • Elvar Ásgeirsson skoraði fimm mörk, gaf tvær stoðsendingar og var einu sinni vikið af leikvelli er Ribe-Esbjerg tapaði stórt fyrir HØJ, 39:25, í umspili dönsku úrvalsdeildarinnar í gær. Ribe-Esbjerg var á grænni grein fyrir leikinn og heldur sæti sínu í deildinni. Stórlið HØJ, sem er stjörnum prýtt, bjargaði sér ekki fyrir horn með sigrinum. Fram undan eru umspilsleikir við sigurlið umspils næstefstu deildar, annaðhvort Aarhus Håndbold eða KIF Kolding.
  • Hvorki Guðmundur Bragi ÁstþórssonÍsak Gústafsson léku með TMS Ringsted í gær þegar liðið steinlá fyrir Sønderjyske, 31:22, í síðasta leik TMS Ringsted í umspili dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Báðir eru meiddir.
  • Tapið kom ekki að sök hjá TMS Ringsted sem var öruggt með að halda sæti sínu í deildinni á næstu leiktíð. Sønderjyske tryggði sér einnig áframhaldandi veru í deildinni með sigrinum.
  • Ísak Steinsson og liðsfélagar í Drammen HK fóru vel af stað í átta liða úrslitum úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í gær. Þeir lögðu Runar, 34:28, á heimavelli. Ísak kom lítið við sögu enda nýlega stiginn upp úr meiðslum sem komu í veg fyrir þátttöku hans í leikjum landsliðsins við Svía í síðasta mánuði. Næsti leikur liðanna verður í Sandefjord á miðvikudaginn.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -