- Auglýsing -
- Orri Freyr Þorkelsson skoraði sex mörk í öðrum sigurleik Sporting á Martimo í undanúrslitum portúgölsku bikarkeppninnar í handknattleik í gær, 42:28.
- Stiven Tobar Valencia var ekki í leikmannahópi Benfica þegar liðið vann Águas Santas, 36:22, í síðari undanúrslitaleik liðanna í portúgölsku bikarkeppninni. Þrátt fyrir tap í fyrri viðureigninni þá dugði sigur Benfica í gær til þess að snúa við taflinu og koma liðinu í úrslitaleikinn við hitt Lissabon-liðið, Sporting.
- Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fjögur mörk og gaf tvær stoðsendingar þegar Alpla Hard vann Füchse, 33:31, í síðustu umferð austurrísku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði ekki mark fyrir Hard en er skráður fyrir einni stoðsendingu. Hannes Jón Jónsson er þjálfari Alpla Hard.
- Alpla Hard hafnaði í öðru sæti deildarinnar, varð tveimur stigum á eftir Jags sem varð deildarmeistari. Alpla Hard mætir Aon Fivers í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar sem hefst á næstu dögum.
- Ólafur Brim Stefánsson var ekki í leikmannahópi Junior Fasano í gær þegar liðinu tókst loksins að vinna leik í ítölsku A-deildinni í handknattleik. Fasano vann Pressano, 30:24, á heimavelli. Töluverð afföll voru í leikmannahópi Fasano í leiknum. Aðeins nöfn 12 leikmanna voru skráð á leikskýrslu.
- Juventus Fasano er í sjötta sæti af 14 liðum deildarinnar þegar ein umferð er eftir. Að deildarkeppninni lokinni taka fjögur efstu liðin þátt í úrslitakeppni um ítalska meistaratitilinn.
- Auglýsing -



