- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Sorhaindo, Petersen, Jakobsen, oddaleikur, Bodó

- Auglýsing -
  • Hinn gamalreyndi franski línumaður Cédric Sorhaindo hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna í sumar. Hann hefur tvö síðustu ár leikið með tyrkneska liðinu Besiktas en var lengst af síns ferils leikmaður Barcelona eða í 11 ár. Sorhaindo, sem er 41 árs gamall, lék 220 landsleiki fyrir Frakkland frá 2005 til 2020 og skoraði 425 mörk og varð margfaldur Ólympíu-, heims- og Evrópumeistari með franska landsliðinu auk þess að vera valinn í úrvalslið Ólympíuleikanna 2016.
  • Færeyski landsliðsmarkvörðurinn Annika Fríðheim Petersen hefur samið við pólska liðið Enea MKS Gniezno frá og með næstu leiktíð. Petersen hefur síðustu tvö ár leikið með danska úrvalsdeildarliðinu EH Aalborg. Hún var markvörður Hauka frá 2020 til 2022.
  • Annar færeyskur landsliðsmarkvörður, Pauli Jakobsen, kveður norska liðið Sandnes í sumar og gerist liðsmaður sænska úrvalsdeildarliðsins IFK Skövde. Jakobsen kom til Sandnes eftir EM í janúar sem lánsmaður frá danska liðinu HØJ.
  • Kolding vann HØJ, 33:29, í öðrum umspilsleik liðanna um sæti í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla í gær. Liðin eru jöfn, hafa unnið einn leik hvort. Oddaleikur fer fram á laugardaginn á Sjálandi.
  • Ungverski landsliðsmaðurinn Richárd Bodó hefur samið við MOL Tatabánya KC. Bodó var tilkynnt á dögunum að honum stæði ekki til boða nýr samningur hjá Pick Szeged eftir áratug í herbúðum félagsins. Bodó þekkir til hjá Tatabánya eftir að hafa verið hjá félaginu frá 2011 til 2016.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -