- Tite Kalandadze fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar og ÍBV er landsliðsþjálfari Georgíu í handknattleik og hefur verið landsliðsþjálfari karla frá 2021. Undir stjórn Kalandadze tryggðu Georgíumenn sér sæti í lokakeppni stórmóts í fyrsta skipti þegar þegar þeir voru með á EM í upphafi þesssa árs.
- Kalandadze, sem er 52 ára, lék með ÍBV frá 2004 til 2006 og í önnur tvö ár með Stjörnunni. Hann varð m.a. bikarmeistari með Stjörnunni 2007 og 2008 m.a. með Roland Eradze sem er með honum á myndinni hér fyrir ofan. Þeir léku einnig saman með félagsliði í Georgíu árum saman og eru góðir félagar. Roland kom með íslenska landsliðinu til Georgíu og er því innan handar við samskipti við heimamenn.
- Viðureign Íslands og Georgíu í undankeppni EM karla í handknattelik hefst klukkan 14 í dag. Útsending frá leiknum verður hjá RÚV. Handbolti.is er í Tíblisi og verður með textalýsingu auk viðtala við leikmenn og þjálfara að leik loknum.
- Valsmaðurinn Bjarni í Selvindi fór ekki með færeyska landsliðinu til Litáen þar sem það mætir úkraínska landsliðinu í dag í annarri umferð undankeppni EM 2026. Í stað Bjarna tók Rói Ellefsen á Skipagøtu sæti í 16-manna hópnum. Bjarni kom ekkert við sögu með færeyska landsliðinu þegar það vann Kósovó, 32:21, í Þórshöfn á miðvikudagskvöld í fyrstu umferð undankeppninnar. Hann á í meiðslum á ökkla þótt hann hafi harkað af sér og leikið með Val síðustu vikur.
- Færeyingar búa sig undir erfiðan leik í Vilnius í dag. Úkraínumenn stóðu í Hollendingum og töpuðu með einu marki á fimmtudagskvöld, 40:39.
- Harpa María Friðgeirsdóttir skoraði þrisvar sinnum fyrir TMS Ringsted þegar liðið tapaði fyrir Roskilde Håndbold, 25:23, á heimavelli í gær í næst efstu deild danska handknattleiksins. TMS Ringsted hefur ekki vegnað sem skildi á leiktíðinni og situr fyrir vikið í 10. sæti af 12 liðum deildarinnar með fjögur stig etir sjö leiki.
- Auglýsing -