- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Viktor, Óðinn, Lena, Tumi, Tryggvi

- Auglýsing -
  • Viktor Gísli Hallgrímsson varði 14 skot, 54% hlutfallsmarkvarsla, í enn einum stórsigri Barcelona í spænsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Viktor Gísli var aðeins annan hálfleikinn í markinu. Barcelona lagði REBI Balonmano Cuenca, 52: 23, í 25. sigri liðsins í spænsku 1. deildinni í handknattleik. Barcelona hefur 16 stiga forskot í efsta sæti þegar fimm umferðir eru eftir og hefur fyrir löngu tryggt sér 16. meistaratitilinn í röð á Spáni.
  • Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélagar í Kadetten Schaffhausen eru komnir í undanúrslit úrslitakeppni A-deildarinnar í Sviss. Þeir unnu GC Amicitia Zürich, 31:27, í þriðja og síðasta leik liðanna á heimavelli í gær. Óðinn Þór var markahæstur með níu mörk, þar af sjö úr vítaköstum. Ekki liggur fyrir hvaða liði Kadetten mætir í undanúrslitum.
  • Lena Margrét Valdimarsdóttir og samherjar í Skara HF eiga einnig víst sæti í undanúrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa lagt VästeråsIrsta HF, 29:19, í þriðju viðureign liðanna í átta liða úrslitum í Skara í gærkvöld. Lena Margrét skoraði tvö mörk og gaf þrjár stoðsendingar.
  • Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Alpla Hard er liðið tapaði fyrir Bärnbach, 30:28, í næstsíðustu umferð austurrísku 1. deildarinnar í gærkvöld. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði ekki mark fyrir Hardverja.
  • Alpla Hard situr þar með í öðru sæti fyrir lokaumferðina sem leikin verður á laugardaginn. Að deildarkeppninni lokinni tekur við úrslitakeppni átta efstu liðanna.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -