KA vann Val öðru sinni á leiktíðinni í Olísdeild karla í handknattleik, 34:29, í mikill stemningu meðal 622 áhorfenda í KA-heimilinu í gærkvöld. Sigurinn færði ekki KA aðeins sæti í úrslitakeppni Olísdeildarinnar heldur greiddi leið FH-inga að deildarmeistaratitlinum. FH lagði Gróttu á sama tíma í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi, 29:22, og náði þriggja stiga forskoti á Val í efsta sæti deildarinnar.
Lokaumferð Olísdeildar karla fer fram á föstudaginn. Úrslitakeppnin hefst eftir viku, miðvikudaginn 10. apríl.
Egill Bjarni Friðjónsson ljósmyndari á Akureyri sendi handbolta.is myndir frá leiknum í KA-heimilinu. Hér fyrir neðan er syrpa mynda Egils Bjarna af því sem fram fór utan vallar sem innan.
Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.
Sjá einnig:
FH er deildarmeistari – Víkingur og Selfoss fallin
Myndskeið: Vorum á eftir í alltof mörgum atriðum
Myndskeið: Óli kveikti bara í þessu