- Auglýsing -
Sérsveitin, stuðningsmannasveit íslensku landsliðanna í handknattleik, kom til Zagreb í gær skömmu fyrir viðureign Íslands og Kúbu í riðlakeppni heimsmeistaramótsins. Sveitin sló ekki slöku við frekar en fyrri daginn á leiknum í gær og keyrði upp stemninguna í fremur ójöfnum leik eins og henni er von og vísa.
Auk Sérsveitarinnar þá voru talsvert fleiri íslenskir stuðningsmenn á leiknum í gær en á fyrsta leiknum við Grænhöfðaeyjar á fimmtudagskvöld. Sjálfsagt hafa þeir verið tvöfalt fleiri og skiptu nokkrum hundruðum.
Sjá einnig: Myndasyrpa: Rífandi góð stemning í stúkunni
Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari stóð vaktina að vanda og smellti af nokkrum myndum af hressu fólki í stúkunni, Sérsveitinni og fleirum.
- Auglýsing -