- Auglýsing -
Íslenska landsliðið vann pólska landsliðið, 37:32, í annarri umferð á Evrópumóti 20 ára landsliða karla í Slóveníu í dag. Með sigrinum eru íslensku piltarnir með fjögur stig eftir tvo leiki og mæta Svíum á laugardaginn í leik um efsta sæti riðilsins og keppnisrétt í átta liða úrslitum mótsins. Sænsku piltarnir hafa líka unnið tvær fyrstu viðureignir sínar í F-riðli mótsins.
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá leiknum við Pólverja í dag.
Sjá einnig:
Öruggur sigur á Pólverjum – uppgjör við Svía á laugardag
EMU20 karla: Leikir, úrslit og staðan, riðlakeppni
Mikill sóknarkraftur og orka í strákunum
- Auglýsing -