Á annað þúsund áhorfendur lögðu leið sína á Ásvelli í gær til þess að fylgjast með landsleik Íslands og Ungverjalands í umspili fyrir heimsmeistaramótið í handknattleik kvenna. Hvöttu þeir íslenska landsliðið með ráðum og dáð. Einnig var nokkur hópur Ungverja sem kom sérstaklega til landsins til að fylgjast með leiknum.
Afar góð stemning var á Ásvöllum og var hún leidd áfram af Sérsveitinni, stuðningssveit íslensku landsliðanna í handknattleik. Sérsveitin lætur ekki þar við sitja heldur hefur hún tekið stefnuna til Ungverjalands til styðja við bakið á íslenska landsliðinu í síðari viðureigninni í undankeppninni.
Leikurinn fer fram á miðvikudaginn í Érd Arena sem er nokkuð áþekk Ásvöllum að stærð og rúmar 2.200 áhorfendur. Érd er í úthverfi Búdapest, þeim hluta sem telst til Pest.
Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari var með vakandi augu fyrir áhorfendum á leiknum í gær, ekki síst Sérsveitinni en einnig glaðværum stuðningsmannahópi Ungverja sem hélt m.a. á lofti skilti einu sem ritstjóri handbolta.is skilur lítt í en lætur mynd af því fljóta með í trausti þess að alls velsæmis sé gætt í því sem á skiltinu stendur.
Myndasyrpa frá landsleiknum á Ásvöllum
Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri.
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/04/Mynd-10326-4-1024x682.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/04/Mynd-10318-4-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/04/Mynd-10303-3-1024x682.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/04/Mynd-10297-3-1024x682.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/04/Mynd-10287-5-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/04/Mynd-10215-2-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/04/Mynd-10216-5-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/04/Mynd-10230-5-1024x682.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/04/Mynd-10262-6-1024x682.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/04/Mynd-10284-3-1024x682.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/04/Mynd-10113-5-1024x682.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/04/Mynd-10095-6-1024x682.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/04/Mynd-10090-10-1024x682.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/04/Mynd-10085-6-1024x682.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/04/Mynd-10084-5-1024x682.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/04/Mynd-10002-16-1024x682.jpg)