Andri Már Rúnarsson skoraði stórglæsilegt mark fyrir lið sitt SC DHfK Leipzig beint úr aukakasti í gærkvöld þegar SC DHfK Leipzig vann Bergischer HC, 33:22, á heimavelli í þýsku 1. deildinnni í handknattleik.
Markið var annað af tveimur sem Andri Már skoraði í leiknum og kom hann liðinu sjö mörkum yfir, 17:10, með þrumuskotinu áður en gengið var til búningsherbergja eftir 30 mínútna leik. Eins og nærri má geta kætti markið áhorfendur sem voru liðlega 4.000 í keppnishöllinni.
Andri haut das Ding rein!!! 💪
— DHfK Handball (@DHfK_Handball) February 29, 2024
Die 1. Halbzeit gegen den @BHC06 endet mit einem Kracher! #dhfkhandball
___
Jetzt liv bei @dynsport pic.twitter.com/cfBBFoCCd4
Hér fyrir neðan er hægt að sjá samantekt frá leiknum en Viggó Kristjánsson, samherji Andra Más, fór hamförum og skoraði annað hvort 13 eða 14 mörk.