- Auglýsing -
Fyrstu leikir Meistaradeildar Evrópu í handknattleik fóru fram í gærkvöld. Íslenskir landsliðsmenn í handknattleik, Orri Freyr Þorkelsson og Viktor Gísli Hallgrímsson, voru andstæðingar þegar lið þeirra Sporting Lissabon og Wisla Plock mættust í Lissabon.
Orri Freyr og félagar í Sporting unnu með fimm marka mun, 34:29. Leikurinn var sá fyrsti sem Sporting leikur í Meistaradeild Evrópu í fimm ár.
Hér fyrir neðan er samantekt úr leiknum þar sem íslensku handknattleiksmönnunum bregður fyrir.
Sjá einnig: Orri Freyr hafði betur gegn Viktori Gísla – Íslendingar mættu Barcelona
- Auglýsing -