Framtíð Danans Simon Pytlick hjá SG Flensburg-Handewitt hefur verið umlukin nokkurri óvissu undanfarna mánuði. Pytlick gengur til liðs við Füchse Berlín næsta sumar en vildi fara til félagsins strax í ár.
Füchse bauð Flensburg háa upphæð til þess að kaupa upp samning hans í sumar en Flensburg hafnaði tilboðinu. Pytlick tjáði sig opinberlega um stöðuna og kvaðst hafa upplifað svik af hálfu vinnuveitenda sinna.
Pytlick upplifir svik hjá vinnuveitendum sínum
Nú er hins vegar annað hljóð komið í strokkinn. „Staðan er sú að ég spila með Flensburg og ég held líka að ég muni spila með liðinu út samninginn minn. Svo sjáum við hvort eitthvað gerist,“ sagði Daninn öflugi í samtali við BT.
Samningur Pytlicks við Flensburg rennur einmitt út sumarið 2027 og því er allt útlit fyrir að upphaflegt samkomulag um að hann gangi til liðs við Füchse eftir eitt tímabil til viðbótar með Flensburg standi óbreytt.



