Róbert Aron Hostert og Magnús Óli Magnússon urðu Íslandsmeistarar sem leikmenn Vals í gærkvöldi. Báðir hafa ákveðið að leggja skóna á hilluna.
Róbert Aron greindi frá ákvörðun sinni í samtali við mbl.is eftir leik og slíkt hið sama gerði Magnús Óli.
Valur stóð af sér síðasta áhlaupið og varð meistari í 25. sinn
Róbert Aron er 35 ára gamall og Magnús Óli fagnar 34 ára afmæli sínu í dag. Þeir létu báðir til sín taka í 27:26 sigri Vals á FH í oddaleik í N1-höllinni á Hlíðarenda í gærkvöldi.
Róbert Aron gekk til liðs við Val frá ÍBV árið 2018 og lék einnig með uppeldisfélagi sínu Fram og danska liðinu Mors-Thy á ferlinum.
Magnús Óli er uppalinn hjá FH, lék með Ricoh í Svíþjóð um tveggja ára skeið og gekk til liðs við Val frá sænska félaginu árið 2017.
Báðir voru þeir einkar sigursælir hjá Val þar sem þeir unnu saman Evrópubikarinn árið 2024, fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum í þriðja sinn með liðinu í gærkvöldi og urðu auk þess bikarmeistarar þrívegis.



