- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sara Katrín er barnshafandi

- Auglýsing -

Sara Katrín Gunnarsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, er barnshafandi og lék af þeim sökum ekki með liðinu í umspili gegn Gróttu um sæti í Olísdeildinni í síðasta mánuði. Er um hennar fyrsta barn að ræða. Handkastið greinir frá.

Sara Katrín er 24 ára vinstri skytta sem hefur áður leikið með Haukum, Fram og uppeldisfélagi sínu HK. Hún var í stóru hlutverki hjá Stjörnunni á nýafstöðnu tímabili, sínu fyrsta með liðinu, og skoraði 65 mörk í 18 leikjum í Olísdeildinni.


Vegna þessara gleðitíðinda verður Sara Katrín að minnsta kosti ekki með Stjörnunni þegar Olísdeildin hefst að nýju í september en ekki er loku fyrir það skotið að hún snúi aftur á völlinn þegar líður á næsta tímabil.

Stjarnan bjargaði sér eftirminnilega frá falli í lokaumferð Olísdeildarinnar í ár og vann svo Gróttu í oddaleik í umspilinu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -