- Auglýsing -
Markvörðurinn Sara Xiao Reykdal er gengin til liðs við Fjölni frá Selfossi. Leikur hún því með Fjölni á komandi tímabili hið minnsta.
Sara er 21 árs gömul og ólst upp hjá Fram. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún komið víða við en Sara hefur einnig verið á mála hjá Gróttu, FH og Víkingi Reykjavík.
„Ég er mjög spennt að vera að koma í Fjölni og fá að takast á við nýjar áskoranir,“ sagði Sara við heimasíðu Fjölnis.
Fjölnir leikur áfram í Grill 66 deildinni á næsta tímabili eftir að hafa hafnað í fimmta sæti hennar á nýafstöðnu tímabili.
- Auglýsing -


